|
|
18.10.2006 21:58:16 / hugrakka
hehe ég er semsagt hætt að blogga hérna og búin að færa mig á
Bloggar.is en ég var alveg hva voðalega koma fáir að skoða nýja
bloggið mitt ég sem lét link á gamla bloggið. Hehe vitir menn
þá póstaðist það ekki oohhhh
Allavegna hérna er nýja slóðinn.
Http://helgasigridur.bloggar.is
hlakka til að sjá ykkur þar svo ég fái nú fleiri en 2 á
síðunni á dag hihihi
»
12.10.2006 21:06:08 / hugrakka
Ég sé að ég er ekkert að fara að breyta þessu bloggi neitt á
næstunni yfir i Bloggar.is svo best að blogga einhvað´hérna
Var að koma frá Hard Rock en við fórum út að borða i tilefni
afmælis Helgu Hreins Rosa fint og ég er að springa
Síðan síðasta blogg er ég búin að vera heima... á Hjallaveginum
og lika í Rvk að vinna á Dýrastofunni í Garðabæ. Rosa
gaman og gott að stytta Haustönnina svona Nú er stutt í Jólafríið
Hvað var gert heima: Unnið 8-17
í Garðabæ í viku og farið á 2. vel heppnuð djömm í
borginni, Annað var innjflutningspartý hjá Eddu og Alla, þar var
sko túttað Svo var eitt óvænt djamm með Söndru minni rosa
stuð. Flogið vestur þunn og þreytt að vanda, heim i
heiðardalinn og var þar í góðu yfirlæti mömmu. Og var ég bara
dugleg að lesa.
Ekkert mikið meir að segja heyri í ykkur síðar
»
09.09.2006 22:36:32 / hugrakka
jjjjeeeeeeessssssssssssssss
Ég er kominn inn til Edinburgh ég trúi þessu
varla, þar sem konan var búin að tala eins og ég kæmist ekki
þangað. Tetta er það besta sem gat gerst i dag þar sem
ég er ógeðslega ógeðslega þunn eftir klikkað skemmtilegt partý á
Guðrúnarstofu í gær. Kom heim rétt eftir 4. Er
svoleiðis að drepast í hálsinum eftir allan Dansinn hehe það var
sturtað kaffikorni á gólfið til að gera þetta ennú betra
En nú er ég að sofna hérna við tölvuna skrifa betur á morgun
enn og aftur hvar eru kommentin, það er hundleiðilegt er þið
kommentið ekki 
»
07.09.2006 18:46:01 / hugrakka
jjeeeiiii, er heldur betur búin að panta mér miða heim
þegar ég hef 2 vikna lestrarfrí i skólanum, þar sem ég ætla mér að
taka verknám í henni Reykjarvik á dýraspýtala Þar sem mér
heyrist allra flestir ætla sér heim eða taka praksis, þá gat ég
ekki hugsað mér að hanga hérna. En ég kem sem sagt 23
sept og verð til 7 oct.
Það er bara sama sagan nóg að gera í skólanum, les les og
aftur les, og þarf ég þá lika að vera dugleg að nýta tíman heima
til að lesa, en eina er að ég veit ekki hvað ég á að taka með mér
þar sem flest allar bækurnar eru 7- 8 cm ´Doðrantar. En
ég vel einhvað skemmtilegt Núna er ég á kafi við að lesa
um Meltingarfæri sjúkdóma hjá Hestum, og er svona að sjá fyrir
endan á því, klára það líklegast á morgun. En ég er þó langt
eftir áætlun þar sem það er núna búið að fara í mage-tarm sykdommer
hjá Kú, Svin, og Hund og katt, meðtalið Lifrarsjúkdómar + fullt af
Meinafræði og grunn að Röntgen sem ég er ekki að nenna að lesa

Ég lenti samt í einu ótrúlegu i dag, þar sem ég týndi norska
bankakortinu mínu i dag, er ég fór í búðina, en fattaði það ekki
fyrr en ég ætlaði að borga í búðinni núna rétt áðan að kortið var
ekki i veskinu, svo ég hélt að það væri kannski heima en á leiðinni
út úr búðinni er svona auglýsingartafla og aldrei slíku vant lít ég
örsnöggt á hana og sé þá allt í einu nafnið HELGA stórum stöfum (
hehe já ég, þessi staurblinda sá þetta) og þá var það stelpa sem
hafði fundið kortið mitt og sagði að ég ætti að hringja í sig. Ohhh
þessir norðmenn eru svo góðir Hei ég hringji og
þá á þessi stelpa heima i sömu blokk og ég og einnig á sömu hæð
hehe Skemmtileg tilviljun Ufff hvað ég er lika ánægð að fá
kortið mitt
´Greipur er kominn til Oslo og það er Islendingagrill á morgun,
og vonandi svaka stuð
ekkert meir að segja i bili
Ha det
»
24.08.2006 20:44:20 / hugrakka
Mikið rosalega er gaman í skólanum núna það er brjálað að gera
8-16 alla daga, og erum við bara í einhverju skemmtilegu. Er
ég búin að vera á Meinafærði krufningarsalnum og er búin að fá
nokkur skemmtileg tilfelli að krifja, einn hest sem ´var með
hrossasótt, einn Grís með beinmyndun í kröset hjá þörmunum og einn
hund með krabbamein i öftustu spenunum sem var búið að dreifa sér
með sogæðunum. Ég ælta nú ekkert að þreyta ykkur meira á
þessu elskurnar mínar
Vikan er búin að fljúga áfram... föstudagur á morgun
Ég er lika búin að fá að vita að FJÖSFEST er 11 nóvember,
svona ef einhver væri til i að koma
Datt líka í hug að ég gæti summerað upp sumarið stuttlega
hérna.
** Mamma, Arnar og Amma i heimsókn
** Verslað i Oslo
** Í Köben að versla
** Vinna
** Kroketmót
** 10 ára fermingarmót 
** Gengið á Ernirinn
** OK fótbolti
** Vinna
** Kajaknámskeið inn i Reykjarnesi
** Ögurball 
** Vinna
** Vilst í þoku á leið yfir þjófana
** Gengið á Horn og trallað í Stígshúsi myndir á
hornstrandir.blogspot.com.
þið sem komuð ekki misstuð af miklu
** Keirt með 2 æðislegum dýralæknum í Borgarfirði í 2 vikur
Nokkrar geldingar, Hest, hunda, og geittarfar
Þó nokkuð af júgurbólgum, doða og súrdoða, samstillingar
Ein fæðingarhjálp
Aflifingar
Læður teknar úr sambandi
Sláturhús
og fleira
** Evrópumeistaramótið í Mýrabolta 
** Lokjahóf með boltastelpunum
** Gengið að Fossavatni
** Kíkt til berja
** Menningarnótt
Ég held satt að segja að sumarplanið hafi bara gengið þokkalega
vel eftir eða hvað finnst ykkur??
Allavegna var þetta alveg brjálæðislega skemmtilegt sumar,
toppaði amk síðasta í aktivitet
»
27.06.2006 16:04:50 / hugrakka
Hehe Ásta nei sem betur fer slapp ég við það, En málið er að ég
er kominn heim í sumarfri, eða allavegna frí frá lestri og
skóla.
Og er ég búin að sjá það að eins og reyndar ég bjóst við er svo
brjálað að gera hjá mér að ég held ég verði bara að setja síðuna i
sumarfrí Sjáumst bara hresss hérna í Águst. Vona að
ég sjái sem flesta i sumar. Minni lika áhugasama á Hornvikur
ferðina í lok júlí, þar sem síðasta ferð hefur spurst út og stefnir
í góðan hóp í ár!!!
Þar til í águst er það bara Gemsinn 
Ha det bra i sommer
»
12.06.2006 19:37:47 / hugrakka
En loksins lét ég verða að þvi að skella mér til sunds hérna í
Sognsvann og hei mamma held að þú sleppir nú ekki við það að
dífa þér þar ef veðrið leifir hehe Og ef veðrið verður svipað á
morgun er ég meir en til að fara aftur á morgun, ef einhverjir hafa
áhuga á að koma með mér !!
fleira var það ekki
leslesles
»
12.06.2006 12:32:24 / hugrakka
Enn þá sól og bara hækkandi hiti 27°C i dag, hélt það myndi
liða yfir mig hjólandi heim uffffff
Svo vil ég bara segja Góða skemmtun Helgi, Ómar, Halldóra
Ragnheiður og G. Helgi á Pink Floyd í kvöld hefði svo
verið til i að vera með ykkur, þar sem ég er nýlegur en vaxandi fan

Best að fara að lesa meira, um matvælasjukdóma og hvernig á að
koma í veg fyrir þá jeeeiii
»
09.06.2006 22:21:49 / hugrakka
Á spáni er gott að djamma og djúsa... hver þarf að fara til spánar
ef búsettur í Noregi  Það var að sjálfsögðu ekki hægt annað en að
fara út með bækurnar í dag, og svei mér þá þá vantaði litið upp á
að ég hefði brunnið hihi Svo er spáin svona allavegana fram á
mánudag, hvað er málið, þarf alltaf að vera svona er ég er að lesa
fyrir próf. Ég vona bara að góðviðriskvótinn verði ekki uppurinn
þegar maður þarf á honum að halda, það er að segja meðan ég verð
með Heimsókn og má vera úti með góðri samvisku Vil ég minna ykkur á
sem eruð að koma að hafa með ykkur Sundföt, því ef veðrið verður
svona væri ég til í að dífa mér einu sinni í Sognsvann, en ég hef
aldrei gert það . Svo vegna hita i dag hjólaði ég ekki upp á
Ulleválseter, en í staðinn var ég að koma frá að hjóla nokkra
hringi i kringum Vatnið, vváá hvað það var flott öðru megin við
vatnið var sólroði á himnum sem glampaði á vatninu og hinu megin
var fullt tungl, svo var einhvað svo friðsælt og fátt fólk. Hei ég
sá Pinnsvin, eða Broddgölt í fyrsta skipti sæse hann var stærri en
ég hafði ímyndað mér hann Datt líka í hug, að setja hérna á síðuna
að ég og fleiri vinir minir erum með planaða ferð að Horni á
Hornströndum helgina 28-30 júli. Og áhugasamir, endilega að skella
sér með okkur  Ég ætla að reyna að lesa einn kafla fyrir svefnin
KOS og KELM
»
07.06.2006 19:09:24 / hugrakka
vá hvað er einhvað erfitt að finna einhvern titill á
færsluna
Ég fór allt í einu að pæla hvað, ég er nú litið merkilegt að
skrifa hérna á síðuna og furða mig á að þið lesið þetta. Þar
sem hún einkennist af hrakförum mínum hehe. Kannski að þetta
lyfti ykkur einhvað upp, ææ Fékk þessa flugu í hausinn núna
er ég var að lesa blogg sem voru á meiri málefnarlegum nótum..
Ekki það að ég fylgist ekki með stjórnmálum og málefnum sem eru
að gerast heima með öðru auganu, en þá nenni ég ekki að
vera að skirfa um það hérna.
En nú má ég nú til með að koma með eitt komment vvááá hvað
Framsókanrflokkurinn er að grafa undan sér endarlega, og er
gjörsamlega að verða búin að grafa sína eigin gröf og nánast moka
yfir lika 
Heyrumst
»
05.06.2006 18:18:46 / hugrakka
jæja ég gerði aðra tilraun i dag til að fara upp að
Ulleválseter, án þess að villast hehe og það gekk, og var ég í um 1
tima og korter uppeftir og niðreftir þegar ég fór rétt að
og úffff ég kemst i búð á morgun allt orðið tómt, en við
Kringsjá liðið sameinuðumst i máltið í gær, þar sem allir voru
tómhentir vegna 3 daga lökunnar i matvörubúðunum.
Meir er það ekki, ég ætla mér að lesa nú í kvöld, er að
sjálfsögðu kominn á eftir áætlun 
ekkert fleira að sinni
Snakkest
»
04.06.2006 11:09:14 / hugrakka
»
03.06.2006 21:43:35 / hugrakka
sæl aftur, bara tvisvar sinnum i dag !!!!
Var að koma af Aðalfundi FÍSN ( Félagi Íslenskra Studenta í
Oslo og Nágrenni) fyrir starfsárið 2005-2006. Þar sem farið var
yfir starf vetrarins og kosið í næstu stjórn, og var maður nú
nánast sjálfkjörinn að þessu sinni enda, dræm mæting, og ég hef
reyndar verið í henni siðustu 2 árin. En góður formaður
Kristján Ketill lætur nú af störfum eftir 2 ár og hefur hann gert
mikið fyrir félagið í sinni setu.
Það munaði þó minnstu að gjaldkerinn sjálfur hefði ekki mætt,
þar sem eftir miklar skriftir um útivist þýddi ekki að sitja inni
við lestur. Ákvað ég að skella mér upp á Ulleválseter hjólandi rétt
eftir 6, og áætlaði ég mér um 1 tima. En þetta er 14 km leið,
ef rétt er farið!!! En mér tókst jú alveg að fara rétt uppeftir, en
á leið minni niður þá tókst mér að fara of langt,
þ.e.a.s framhjá einum afleggjara og taldi mig svo ætla að
stytta mér leið í gegnum skóginn, (það var þar reyndar alveg
merkt leið). En þetta var sko enginn stytting á leiðinni þar
sem ég mátti leiða hjólið mitt inn í skógi upp og niður i drullu og
bleitu í um 4 km oohhhh Týpiskt ég
Ég náði nú samt alveg að mæta á fundin bara um 30 min of seint,
með skyr og gulrætur í poka hehe
fleira var það nú ekki elskurnar
»
03.06.2006 13:28:47 / hugrakka
Allir flestir komnir i sumarfri frá skólum og byrjaðir að vinna
og þá sumir fyrir löngu
En aðrir búinir með B.S gráðu og í útskriftarferðum út í
heimi.vottar fyrir pínu öfund í þessum skrifum mínum, þar sem ég er
hér ennþá á fullu en þýðir víst enga vorkunn og er ég því farinn að
lesa
Verður gaman i sumar og set ég planið á mikla útivist,
fjallgöngur, reiðtúra, veiði, útilegur, vonandi einhver sjósport,
fótbolta og fleira. Langar líka óendalega mikið að síga, vona
að maður geti reddað sér þvi einhvern veginn.
Því óska ég eftir að allir sem ætla að gera einhvað skemmtilegt
úti í sumar hafi samband við mig, þessu er þá séstaklega beint til
þeirra sem eru staðsettir á Vestfjörðum en einnig til annara, það
er aldrei að vita að maður sjái sér fært að gera sér ferð einhvert
annað á landið yfir eina helgi eða svo
»
02.06.2006 16:49:28 / hugrakka
nokkuð skondið þar sem allar likur eru nú á því að ég endi í
Dublin næsta vor 
<>
</>
You Belong in Dublin
|
http://images.blogthings.com/whateuropeancitydoyoubelonginquiz/dublin.jpg"
height="100" width="100">
Friendly and down to earth, you want to enjoy Europe without
snobbery or pretensions.
You're the perfect person to go wild on a pub crawl... or enjoy a
quiet bike ride through the old part of
town.
|
»
Síður: 1 2 3 4
|
|